Staðfestum kórónuveirusmitum fjölgaði um 30 síðastliðinn sólarhring og er heildarfjöldi staðfestra smita því orðinn 1.616.
Þetta kemur fram á covid.is.
Alls var 671 sýni tekið hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og 1.284 hjá Íslenskri erfðagreiningu. Jákvæð sýni voru 29 hjá Landspítalanum og eitt hjá Íslenskri erfðagreiningu.
60% þeirra sem greindust voru í sóttkví. 39 liggja á spítala, þar af 13 á gjörgæslu. Sex eru látin.