Farþegum fækkað um 75%

mbl.is/Hari

Þjónusta hjá Strætó á landsbyggðinni mun frá og með morgundeginum skerðast tímabundið vegna COVID-19-faraldursins.

Farþegum almenningsvagna á landsbyggðinni hefur fækkað um 75% yfir síðustu vikur og Vegagerðin neyddist því til þess að draga úr akstri.

„Við munum áfram sjá til þess að halda uppi almenningssamgöngum á landsbyggðinni eins og kostur er. Hins vegar eru aðstæður afar óvenjulegar. Farþegum hefur fækkað verulega á flestum leiðum, og því ekki annað hægt en að bregðast við með ákveðnum skerðingum,“ segir Sólveig Jóhanna Guðmundsdóttir, forstöðumaður almenningssamgöngudeildar Vegagerðarinnar, í fréttatilkynningu.

Vegagerðin annast skipulag almenningssamgangna á landsbyggðinni. Það felur í sér rekstur almenningsvagna á milli þéttbýlisstaða, rekstur ferja og að haldið sé úti flugi á ákveðna staði.

Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um breytta áætlun hjá Strætó á landsbyggðinni:

Suðurnes

Leið 55: Reykjavík – Keflavíkurflugvöllur

  • Leiðin mun aka skv. laugardagsáætlun alla daga á meðan skerðingin er í gildi.

Leið 87: Vogar – Vogaafleggjari

  • Engin skerðing þar til annað verður tilkynnt.

Leið 88: Grindavík – Reykjanesbær

  • Leiðin mun aka skv. laugardagsáætlun alla daga á meðan skerðingin er í gildi.
  • Ferðum kl. 07:24 frá Grindavík og kl. 07:50 frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja verður bætt við áætlunina á virkum dögum.

Leið 89: Reykjanesbær – Garður – Sandgerði

  • Ferðirnar kl. 22:10 frá Miðstöð og kl. 22:34 frá Sandgerði verða ekki eknar á meðan skerðingin er í gildi.
  • Engin þjónusta verður á leiðinni um helgar á meðan skerðingin er í gildi.

 

Suðurland

Leið 51: Reykjavík – Höfn í Hornafirði

  • Leiðin mun aka skv. laugardagsáætlun alla daga á meðan skerðingin er í gildi.
  • Ferðirnar milli Víkur í Mýrdal og Hafnar í Hornafirði verða aðeins eknar á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum.

Leið 52: Reykjavík – Landeyjahöfn

  • Leiðin mun aka skv. laugardagsáætlun alla daga á meðan skerðingin er í gildi.

Leið 71: Þorlákshöfn – Hveragerði

  • Engin þjónusta á leiðinni á meðan skerðingin er í gildi.

 

Leið 72: Selfoss – Reykholt – Flúðir

  • Engin þjónusta á leiðinni á meðan skerðingin er í gildi.

Leið 73: Selfoss – Flúðir – Reykholt – Laugarvatn

  • Leiðin mun aka skv. laugardagsáætlun alla daga á meðan skerðingin er í gildi.

 

Leið 75: Selfoss – Stokkseyri – Eyrarbakki

  • Leiðin mun aka skv. laugardagsáætlun alla daga nema sunnudaga á meðan skerðingin er í gildi.

Vestur- og Norðvesturland

Leið 57: Reykjavík – Akureyri

  • Leiðin mun aka skv. laugardagsáætlun alla daga á meðan skerðingin er í gildi.

Leið 58: Borgarnes – Stykkishólmur

  • Mánudagsferðirnar kl. 16:40 frá Stykkishólmi og kl. 18:19 frá Borgarnesi verða ekki eknar á meðan skerðingin er í gildi.
  • Sunnudagsferðirnar kl. 08:20 frá Stykkishólmi og kl. 10:28 frá Borgarnesi verða ekki eknar á meðan skerðingin er í gildi.

Leið 82: Stykkishólmur – Hellissandur

  • Mánudagsferðirnar kl. 16:00 frá Hellissandi og kl. 19:10 frá Stykkishólmi verða ekki eknar á meðan skerðingin er í gildi.
  • Sunnudagsferðirnar kl. 07:39 frá Hellissandi og kl. 11:19 frá Stykkishólmi verða ekki eknar á meðan skerðingin er í gildi.

 

Leið 59: Borgarnes – Hólmavík

  • Miðvikudagsferðirnar kl. 18:00 frá Borgarnesi og kl. 19:12 frá Búðardal verða ekki eknar á meðan skerðingin er í gildi.

 

Leið 81: Borgarnes – Hvanneyri – Reykholt

  • Engin þjónusta á leiðinni á meðan skerðingin er í gildi.

 

Leið 83: Hvammstangi – Hvammstangavegur

  • Pöntunarþjónusta. Engin skerðing þar til annað verður tilkynnt.

Leið 84: Blönduós – Skagaströnd

  • Pöntunarþjónusta. Engin skerðing þar til annað verður tilkynnt.

 

Norður- og Norðausturland

Leið 56: Akureyri - Egilsstaðir

  • Engin frekari skerðing.

Leið 78: Siglufjörður – Akureyri

  • Ferðirnar kl. 09:35 frá Siglufirði og kl. 13:15 frá Akureyri verða ekki eknar á virkum dögum á meðan skerðingin er í gildi.

Leið 79: Akureyri – Húsavík

  • Ferðirnar kl. 06:31 frá Húsavík og kl. 08:21 frá Akureyri verða ekki eknar á virkum dögum á meðan skerðingin er í gildi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert