Flugvél Icelandair leggur af stað frá Keflavíkurflugvelli klukkan 8.40 í fyrramálið til Sjanghæ í Kína í þeim tilgangi að sækja 16 tonn af lækningabúnaði. Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is.
Þetta er í annað sinn sem vél Icelandair sækir lækningabúnað til Kína en 17 tonn af lækningabúnaði komu hingað til lands á skírdag. Í þeirri sendingu voru maskar, andlitshlífar, grímur og hlífðargalla. Í fyrstu virtust grímurnar ekki uppfylla kröfur en við nánari athugun kom í ljós að þær eru nothæfar. Ásdís hefur ekki upplýsingar um hvers konar búnaður verður sóttur í þessari ferð.
Um er að ræða leiguflug á vegum Icelandair Cargo og Loftleiða Icelandic í samstarfi við aðila í heilbrigðisgeiranum á Íslandi og DB Schenker. Ferðalagið mun taka 11-12 klukkustundir. Ásdís gerir ráð fyrir að stoppað verði í borginni í um fjórar klukkustundir, eingöngu til að hlaða vélina áður en lagt verður af stað aftur til Íslands.
Tólf manna áhöfn verður í fluginu: sex flugmenn, fjórir hlaðmenn og tveir flugvirkjar. Vélin er væntanleg aftur til Keflavíkur um hádegi á föstudag.