Samstarfsráðherrar Norðurlanda ákváðu á fjarfundi í dag að fjármagna aðgerðir á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar til að mæta áhrifum COVID-19-heimsfaraldursins.
Norræna ráðherranefndin hefur þegar gripið til vissra ráðstafana eins og að auka rannsóknarstarf á vegum Norrænu rannsóknarstofnunarinnar, NordForsk. Norrænir heilbrigðisráðherrar og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra hafa átt náið samráð um aðgerðir í bráð og lengd.
Öllum fagráðherraráðum innan Norrænu ráðherranefndarinnar verður falið að koma með tillögur um það hvernig Norðurlöndin geti í sameiningu brugðist með enn markvissari hætti við núverandi ástandi en ljóst er að COVID-19-faraldurinn mun hafa víðtæk áhrif á atvinnulíf, vinnumarkað og samfélag, að því er kemur fram í tilkynningu.
Á fundinum kom fram skýr vilji til að draga lærdóm af viðbrögðum Norðurlandanna hingað til, sem að sumu leyti hafa verið ólík. Það verði einnig gert til þess að geta metið næstu skref og ekki síst til að undirbúa Norðurlöndin betur fyrir sambærileg áföll í framtíðinni.
Samstarfsráðherrarnir voru sammála um að ný framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar, sem samþykkt var í fyrra á formennskuári Íslands og leggur áherslu á loftslagsmál og samþættingu Norðurlandanna, ætti áfram að vera leiðarljós norræns samstarfs en með aukinni áherslu á heilbrigðissamstarf.
„Þessi heimsfaraldur mun ganga yfir, svo mikið er víst, og vonandi fyrr en síðar. En þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á sviði loftslagsmála eru ekki á förum,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, í tilkynningunni.
„Þess vegna er mikilvægt að um leið og við gerum meira á norrænum vettvangi til að mæta áhrifum COVID-19 vinnum við áfram að markmiðinu um græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd. Við Íslendingar skulum nýta uppbyggingarstarfið sem er fram undan til að ná því markmiði.“