Hreinsun hafin á götum og stígum

Lækjargata sópuð.
Lækjargata sópuð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vinna við hreinsun á götum og stígu m Reykjavíkur eftir veturinn er hafin af krafti. Byrjað var nokkru fyrir páska, en veður setti strik í reikninginn því götusópar geta ekki unnið þegar hitastig er við frostmark.

Unnið var á skírdag og annan í páskum til að vinna upp þá daga sem féllu út. Björn Ingvarsson, stjórnandi hjá þjónustumiðstöð borgarlandsins, segir á vef borgarinnar að fjölförnustu leiðirnar verði hreinsaðar fyrst. Á það við um helstu göngu- og hjólastíga, sem og stofnbrautir og tengigötur.

„Þessar meginleiðir liggja þvert um borgarlandið og njóta því forgangs, en að lokinni hreinsun þeirra verður farið hverfaskipt í húsagötur og gangstéttar, sem verða sópaðar og þvegnar,“ segir Björn í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert