Ósanngjarnt að velta ábyrgðinni á flugmenn

Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir laun flugmanna Icelandair sambærileg við það …
Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir laun flugmanna Icelandair sambærileg við það sem þekkist á alþjóðlegum markaði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það er bæði ósanngjarnt og villandi að velta ábyrgðinni á framtíð flugfélagsins að mestu yfir á starfsfólk þess. Rekstrarvandi Icelandair er flókið samspil ytri og innri þátta og flugmenn ætla að taka þátt í að leysa úr þeim vanda með fyrirtækinu.“ Þetta segir í tilkynningu sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna sendi frá sér í dag.

Þar segir að misvísandi sé að ýja að því að launakostnaður flugmanna Icelandair sé stór þáttur í rekstrarvanda félagsins eða yfirhöfuð hærri en gerist á hinum alþjóðlega markaði sem félagið starfar á. Laun flugmanna Icelandair séu fyllilega sambærileg við laun hjá öðrum flugfélögum, austan hafs og vestan, auk þess að vera sambærileg við flugmenn sem unnu hjá WOW.

Enn fremur er bent á að flugmenn hafi þegar sýnt viljann í verki með því að fresta umsömdum launahækkunum á síðasta ári, framlengja kjarasamning án launahækkana auk þess sem þeir flugmenn sem ekki sættu uppsögn tóku á sig 50% launaskerðingu í apríl. Þá sé ótalinn fjöldi undanþága sem gerðar hafa verið frá ákvæðum kjarasamnings og reglugerða vegna COVID-19.

Í tilkynningunni segir að nýting flugmanna gæti verið betri hjá Icelandair. Þann vanda megi að mestu leyti rekja til kyrrsetningar Boeing 737 Max-flugvéla félagsins og breytinga á leiðarkerfi sem gerðar hafi verið. „Kjarasamningar flugmanna Icelandair koma ekki í veg fyrir nýtingu starfskrafta þeirra til jafns við það sem best gerist erlendis,“ segir í tilkynningunni.

Er þar bent á að flugmenn hafi sjálfir haft frumkvæði að því að bæta nýtingu og hafi sem dæmi í öllum kjaraviðræðum frá 2011 lagt fram fullmótaðar tillögur þess efnis bæði fyrir leiguflug erlendis og áætlunarflug í leiðarkerfi Icelandair.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert