Þjóðaröryggisráð hefur ákveðið að koma á fót vinnuhópi til að kortleggja birtingarmyndir og umfang upplýsingaóreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi og gera tillögur um aðgerðir til þess að sporna gegn henni.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að íslensk stjórnvöld séu í samstarfi við önnur EES-ríki um að sporna gegnu upplýsingaóreiðu og rangfærslum í tengslum við kórónuveirufaraldurinn.
„Sjaldan hefur verið mikilvægara að almenningur hafi aðgang að réttum upplýsingum eins og nú í tengslum við þennan heimsfaraldur sem nú geisar.“
Í vinnuhópnum eru þau Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, Kjartan Hreinn Njálsson frá Landlæknisembættinu, Jón Gunnar Ólafsson, doktor í fjölmiðlafræði, Anna Lísa Björnsdóttir, samskiptamiðlafræðingur, Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður, María Mjöll Jónsdóttir frá utanríkisráðuneytinu, Sigurður Emil Pálsson frá samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu, Þorgeir Ólafsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Þórunn J . Hafstein, ritari þjóðaröryggisráðs, sem leiðir starf hópsins.