100 milljóna viðbót til Vinnumálastofnunar

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vinnumálstofnun fær allt að 100 milljóna króna viðbótarfjármagn til reksturs stofnunarinnar vegna aukinna verkefna í tengslum við COVID-19. Þetta kynnti Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, í ríkisstjórn í dag sem hluta af aðgerðarpakka stjórnvalda vegna COVID-19.

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að fjárveitingin verði nýtt til að ráða 35 einstaklinga til starfa, tímabundið til sex mánaða, en mikil þörf er fyrir aukinn mannafla hjá stofnuninni.

Þá verður ýmis stoðþjónusta efld, svo sem tölvuþjónusta og upplýsingagjöf um ýmsa tölfræði, auk þess sem mikilvægt er að vinna spár um ástand og horfur á vinnumarkaði til framtíðar litið.

Vinnumálastofnun hafa borist samtals um 33.800 umsóknir um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli síðan opnað var fyrir umsóknir um úrræðið þann 25. mars síðastliðinn.

Það sem af er apríl hafa stofnuninni jafnframt borist um 2.200 umsóknir frá einstaklingum sem eru að fullu skráðir án atvinnu sem er viðbót við þá 14.200 einstaklinga sem þegar voru að fullu skráðir án atvinnu í lok mars 2020. Miðað við núverendi forsendur munu því um 50.000 einstaklingar fá greiddar atvinnuleysisbætur að fullu eða að hluta á móti skertu starfshlutfalli í lok apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert