Gott veður var um land allt á sumardaginn fyrsta og dagurinn stóð sannarlega undir nafni á Akureyri.
Götukaffihúsastemmning var í blíðviðri og sól í Hafnarstræti. Margir töldu óhætt að sleppa peysunni. Áfram verður bjart norðanlands fram eftir degi í dag en rigning eða skúrir sunnan til.
Mikil umferð var á göngustígum á höfuðborgarsvæðinu í gær þótt skýjað væri en flestir reyndu að passa upp á fjarlægðina.