Aðeins eitt nýtt smit kórónuveiru greindist á Íslandi í gær, hjá Íslenskri erfðagreiningu. Ekkert nýtt smit greindist hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.
Þetta kemur fram í tölum á covid.is sem birtust núna rétt fyrir klukkan 13.
Samtals voru 685 sýni tekin, þar af aðeins 77 á sýkla- og veirufræðideildinni.
Fjöldi virkra smita heldur áfram að lækka og eru þau nú 210 talsins. Samtals hafa 1.570 manns náð bata.