Aðstoða þarf hluta sveitarfélaganna

Sigurður Ingi í þungum þönkum á Alþingi.
Sigurður Ingi í þungum þönkum á Alþingi. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það er ekki ólíklegt, vegna ólíkrar stöðu sveitarfélaganna, að eitthvað þurfi að gera til þess að þau geti tekist á við svona verkefni,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra sveitarstjórnarmála, þegar hann er spurður hvort til greina komi að ríkið styðji við sveitarfélögin vegna tekjufalls sem mörg þeirra eru að verða fyrir vegna kórónuveirufaraldursins.

Sigurður Ingi segist vissulega hafa áhyggjur af stöðu sveitarfélaganna, eins og mörgum öðrum þáttum samfélagsins þar sem tekjur minnka mikið. Staða þeirra sé hins vegar afar mismunandi. „Það eru ekkert annað en hamfarir í atvinnulífi hjá einstökum sveitarfélögum og á svæðum þar sem ferðaþjónustan skiptir mestu máli. Atvinnuleysið er komið um og yfir 40%, tímabundið,“ segir ráðherrann.

Segir Sigurður Ingi að Byggðastofnun hafi verið beðin að greina stöðu sveitarfélaganna og líklega þróun út frá mismunandi stöðu þeirra. Þær upplýsingar fari inn í hóp sem greinir stöðu sveitarfélaganna almennt. „Augljóst er að mörg af stærri sveitarfélögunum eiga auðveldara með að takast á við svona vanda, eru með fjölbreytt atvinnulíf og fjölmenna stjórnsýslu,“ segir Sigurður Ingi í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert