Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til útbreiðslu kórónuveirunnar hér á landi.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, sækir einnig fundinn.