Almenn réttindi að fá viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Sálfræðingafélag Íslands skorar á alla þingmenn og heilbrigðisráðherra að setja frumvarp um breytingar á lögum um sjúkratryggingar í forgang. Markmið frumvarpsins er að tryggja að sálfræðiþjónusta falli undir greiðsluþátttökukerfi sjúkratrygginga og sé þannig veitt á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta.

Þetta kemur fram í opnu bréfi Sálfræðingafélags Íslands til heilbrigðisráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar, er flutningsmaður frumvarpsins, auk 22 annarra þingmanna úr öllum flokkum. Sálfræðingafélagið hefur bæði sent inn umsögn um málið og mætt á fund velferðarnefndar og mælt með því að frumvarpið verði samþykkt.

Í bréfinu kemur fram að ljóst sé að langt og strangt uppbyggingarferli sé fram undan vegna kórónuveirufaraldursins. Ekki sé einungis um efnahagslegar áskoranir að ræða heldur einnig áskoranir á sviði lýðheilsu og geðheilbrigðis.

Aðgengi að sálfræðiþjónustu sé  því miður enn of takmarkað og fólk sem glímir við geðrænan vanda þurfi oft að bíða of lengi eftir þjónustu og standa sjálft straum af miklum kostnaði.

„Það eru mikil gleðitíðindi að fjölgað verði stöðugildum sálfræðinga á fyrstu línu stofnunum eins og á Heilsugæslunni. Með þeim hætti er verið að auka aðgengi að sálfræðiþjónustu og vonandi stytta biðtíma eftir slíkri þjónustu. Þrátt fyrir að það sé skref í rétta átt óttumst við að það eitt og sér dugi ekki til,“ segir í bréfinu.

„Tryggjum öllum, óháð efnahag, aðgengi að viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu. Það eru almenn réttindi og ættu ekki að teljast til forréttinda. Fjárfesting í mannauði og geðheilbrigði er þjóðinni hagkvæm þegar litið er til lengri tíma,“ segir þar jafnframt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert