Hlutabótaleiðin með óbreyttu sniði út júní

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti framhald hlutastarfaleiðarinnar og stuðning við launagreiðslur …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti framhald hlutastarfaleiðarinnar og stuðning við launagreiðslur fyrirtækja á blaðamannafundi í Safnahúsinu fyrir hádegi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar verður framlengd með óbreyttum hætti út júní. Að því loknu verða lagðar til breytingar sem lúta að því að hlutfallið verður hækkað úr 25% í 50% sem mun gilda út ágúst. Þá geta fyrirtæki sem orðið hafa fyrir að lágmarki 75% tekjufalli og sjá fram á áframhaldandi tekjufall að minnsta kosti út þetta ár sótt um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

Þetta er meðal þess sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti á blaðamannafundi í Safnahúsinu fyrir hádegi þar sem framhald hlutabótaleiðarinnar og stuðningur við launagreiðslur fyrirtækja voru kynnt. 

„Úthald ríkissjóðs er ekki takmarkalaust. Kostnaðurinn verður verulegur og það mun taka langan tíma að vinna okkur úr þessari kreppu, það vitum við,“ sagði Katrín. 

Hlutabótaleiðin hefði að óbreyttu fallið úr gildi 1. júní. „Afkoma tugþúsunda launafólks hefur verið varin frá því að leiðin tók gildi en ljóst er að efnahagshorfur hafa breyst umtalsvert á þeim rúma mánuði sem liðinn er frá gildistöku hennar,“ segir í tilkynningu.

Bjarni Benediktsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og …
Bjarni Benediktsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Ásmundur Einar Daðason á fundinum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hlutastarfaleiðin verður því framlengd án breytinga með 25% lágmarksstarfshlutfalli út júní en lágmarkið hækkar í 50% í júlí. Leiðin verður í boði til 31. ágúst. Sækja þarf um framlengingu leiðarinnar og skilyrði fyrir þátttöku verða endurskoðuð. 

Fram kom í máli Katrínar að af þeim 35 þúsund einstaklingum sem eru í lækkuðu starfshlutfalli starfa um 14 þúsund þeirra í ferðatengdum greinum. 

„Við horfum á þessum leið sem mikilvæga leið fyrir launafólk og fyrirtæki í landinu til að halda störfum,“ sagði Katrín. 

Hámarkshlutfall stuðnings ríkisins verður 85%

Þá verða settar tímabundið einfaldari reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Byggt verður á núgildandi grunnreglum en breytingar miða að því að fyrirtæki geti komist í skjól á einfaldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra og uns meiri vissa fæst um framtíðarhorfur. Breytingar lúta m.a. að skilyrðum fjárhagslegrar endurskipulagningar, beiðni og umfjöllun um hana, tímafrestum, heimildum til ráðstafana og riftunar- og vanefndaheimildum viðsemjenda.

Í því skyni að tryggja réttindi launafólks og forða gjaldþrotum eins og kostur er verður fyrirtækjum gefinn kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Stuðningurinn verður í formi greiðslu að hámarki 633 þús.kr. á mánuði í allt að þrjá mánuði auk orlofs og einskorðast við fyrirtæki sem orðið hafa fyrir að lágmarki 75% tekjufalli og sjá fram á áframhaldandi tekjufall að minnsta kosti út þetta ár. Áætlað er að um fjórðungur fyrirtækja hafi orðið fyrir slíku tekjutapi. Hámarkshlutfall stuðnings ríkisins verður 85%. Starfsmenn skulu eiga forgang til starfs þegar starfsemi hefst að nýju og halda tilteknum áunnum réttindum. Sett verði nánari skilyrði, til að mynda um rekstrarhæfi fyrirtækis, fyrir aðild að þessu úrræði og um endurkröfurétt. Leiðin er í boði frá 1. maí til 30. september. 

Unnið er að frumvörpum um tillögurnar í félagsmála-, fjármála- og efnahags- og dómsmálaráðuneyti. Samráð verður haft við aðila vinnumarkaðarins um endanlegar útfærslur, að því er segir í tilkynningu stjórnarráðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert