Einar, Kristrún og Ásta skipuð í eftirlitsnefnd

Nefndinni er ætlað að hafa almennt eftirlit með framkvæmd lánveitinganna …
Nefndinni er ætlað að hafa almennt eftirlit með framkvæmd lánveitinganna til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eftirlit með framkvæmd veitingar viðbótarlána lánastofnana með ríkisábyrgð. Í nefndinni eiga sæti Einar Páll Tamimi formaður, Kristrún Heimisdóttir og Ásta Dís Óladóttir.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, en þar segir að nefndinni sé ætlað að hafa almennt eftirlit með framkvæmd lánveitinganna til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Nefndin skal skila fjármála- og efnahagsráðherra skýrslu um framkvæmdina á sex mánaða fresti, í fyrsta sinn fyrir 1. nóvember 2020. Jafnframt skal hún upplýsa ráðherra án tafar ef hún verður vör við brotalamir í framkvæmdinni.

Í skipunarbréfi kemur fram að sömu nefnd verði falið að hafa eftirlit með framkvæmd stuðningslána ef Alþingi samþykkir fyrirliggjandi tillögu þess efnis í frumvarpi til laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka