Helgi nýr sveitarstjóri Fljótsdalshrepps

Helgi Gíslason hefur verið ráðinn sveitarstjóri Fljótsdalshrepps.
Helgi Gíslason hefur verið ráðinn sveitarstjóri Fljótsdalshrepps.

Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps hefur gengið frá ráðningu Helga Gíslasonar, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur, sem nýs sveitarstjóra. Frá þessu er greint á vef Austurfréttar.

Helgi er fæddur og uppalinn Héraðsbúi, ættaður frá Helgafelli í Fellabæ þar sem hann bjó til ársins 2016.

Helgi er skógfræðingur að mennt, lærður í Svíþjóð. Hann var framkvæmdastjóri Héraðsskóga fyrstu 14 starfsár þess verkefnis en hefur undanfarin 16 ár stýrt Skógræktarfélagi Reykjavíkur.

Í tilkynningu segir að Helgi þekki vel til fólks og samfélags í Fljótsdal, atvinnufyrirtækja og stofnana en hann var um tíma formaður stjórnar Gunnarsstofnunar.

Alls bárust 18 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Ráðningin var staðfest á fundi sveitarstjórnar í gær og segir í tilkynningu að hún hafi verið samþykkt einróma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert