Þorsteinn ráðinn borgarritari

Þorsteinn Gunnarsson, fráfarandi sveitarstjóri Skútustaðahrepps, hefur verið ráðinn borgarritari Reykjavíkurborgar.
Þorsteinn Gunnarsson, fráfarandi sveitarstjóri Skútustaðahrepps, hefur verið ráðinn borgarritari Reykjavíkurborgar. Ljósmynd/Aðsend

Þorsteinn Gunnarsson hefur verið ráðinn borgarritari Reykjavíkurborgar, en hann tekur við starfinu af Stefáni Eiríkssyni sem var ráðinn útvarpsstjóri. Var ráðning hans samþykkt á fundi borgarráðs í dag.

Í tilkynningu frá borginni kemur fram að Þorsteinn hafi verið metinn hæfastur allra umsækjenda af ráðgefandi hæfnisnefnd sem hafi verið skipuð til að meta þá 18 umsækjendur sem sóttu um. 

Þorsteinn er með MPM gráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og diplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Þorsteinn hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu á sveitarstjórnarstigi. Hann gegndi starfi upplýsinga- og þróunarfulltrúa Grindavíkur um fjögurra ára skeið þar sem hann hafði umsjón með innra og ytra kynningar- og upplýsingastarfi, markaðsstarfi, áætlanagerð og fleiru. Þá gegndi hann starfi sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs hjá Grindavík í þrjú ár þar sem hann bar ábyrgð á íþrótta-, frístunda- og menningarmálum sveitarfélagsins.

Undanfarin fjögur ár hefur Þorsteinn starfað sem sveitarstjóri Skútustaðahrepps og hlotið umfangsmikla reynslu af öllum verkefnum sveitastjórnarstigsins, m.a. á sviði stjórnsýslu, skipulagsmála og umhverfismála. Áður starfaði Þorsteinn meðal annars sem íþróttafrétta- og dagskrárgerðamaður hjá 365 miðlum í átta ár, framkvæmdastjóri ÍBV og upplýsingafulltrúi Vinnslustöðvarinnar, kennari og blaðamaður. Þorsteinn hefur gegnt ýmsum stjórnarstörfum í íþróttahreyfingunni og er í dag aðalmaður í stjórn KSÍ. Hann hefur einnig verið í stjórn ferðamálasamtaka Reykjaness og í stjórn Reykjaness jarðvangs.

Borgarritari er æðsti embættismaður borgarinnar að undanskildum borgarstjóra og einn af staðgenglum hans. Borgarritari hefur yfirumsjón með miðlægri stjórnsýslu og stoðþjónustu á vegum Reykjavíkurborgar og er tengiliður Reykjavíkurborgar við byggðasamlög og B-hluta félög. 

Eins og fyrr segir sóttu átján um starfið. Meðal þeirra voru fyrr­ver­andi formaður slita­stjórn­ar Glitn­is, fyrr­ver­andi aðstoðarfor­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og fyrr­ver­andi út­gef­andi Frétta­blaðsins. Í hæfnisnefnd voru Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, sem jafnframt var formaður, Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítala og Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands. Ráðgjafarfyrirtækið Intellecta sinnti utanumhaldi og stuðningi við hæfnisnefndina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert