Segir SÍS neita að semja við félaga Eflingar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Samband íslenskra sveitarfélaga neitar enn að gera kjarasamning við Eflingarfélaga sambærilegan þeim sem ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir hafa gert við félagið. Sambandið er eitt opinberra aðila um þessa afstöðu á því atvinnusvæði þar sem Efling hefur samningsumboð. Þetta kom fram á samningafundi í dag.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu eftir að sáttafundi hjá ríkissáttasemjara lauk nú fyrir skömmu. Verkfall félagsmanna Eflingar í Kópa­vogi, á Seltjarn­ar­nesi og fleiri sveit­ar­fé­lög­um hefst því á há­degi á morg­un. 

Verk­fallið mun taka til fólks sem sér um ræst­ing­ar í fjór­um af 21 leik­skóla og fjór­um af níu grunn­skól­um í Kópa­vogi og ljóst þykir að þeim verði lokað fljót­lega aft­ur eft­ir að eðli­legt skóla­hald hefst.

Munu fá leiðréttingu þrátt fyrir faraldur

„Efling mun ekki skilja félagsmenn sína hjá Kópavogs- og Seltjarnarnesbæ eftir með verri kjarasamninga eingöngu af því að Sambandinu tókst að draga þessu kjaradeilu á langinn inn í kórónuveirufaraldurinn. Hver einn og einasti félagsmaður Eflingar hjá hinu opinbera mun fá sína kjaraleiðréttingu, kórónaveira eða ekki,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, í tilkynningunni.

Í tilkynningunni segir að Samband íslenskra sveitarfélaga ætlist til þess að starfsfólk hjá Kópavogsbæ og Seltjarnarnesbæ sem vinnur sömu störf og borgarstarfsmenn verði á verri kjörum en þeir, jafnvel þótt um nákvæmlega sömu starfsheiti sé að ræða, á sama atvinnusvæði, metin til sama stigafjölda innan starfsmatskerfis og hjá starfsfólki innan vébanda sama stéttarfélags.

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir í samtali við mbl.is að fundurinn hafi gengið illa og að lítinn sáttatón hafi mátt greina meðan á honum stóð. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar en „við erum að sjálfsögðu tilbúin til fundar hvenær sem er,“ segir Viðar.

Fréttatilkynning frá Eflingu stéttarfélagi um kjaraviðræður við SÍS í heild:

Samband íslenskra sveitarfélaga neitar enn að gera kjarasamning við Eflingarfélaga sambærilegan þeim sem ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir hafa gert við félagið. Sambandið er eitt opinberra aðila um þessa afstöðu á því atvinnusvæði þar sem Efling hefur samningsumboð. Þetta kom fram á samningafundi í dag.

Sambandið ætlast þannig til þess að starfsfólk hjá Kópavogsbæ og Seltjarnarnesbæ sem vinnur sömu störf og borgarstarfsmenn verði á verri kjörum en þeir, jafnvel þótt um nákvæmlega sömu starfsheiti sé að ræða, á sama atvinnusvæði, metin til sama stigafjölda innan starfsmatskerfis og hjá starfsfólki innan vébanda sama stéttarfélags.

Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur kallað eftir að lög verði sett á verkfallsaðgerðir Eflingarfélaga, sem að óbreyttu munu hefjast klukkan 12 á hádegi á morgun, þriðjudag 5. maí, fremur en að ganga til samninga við Eflingarfélaga á sömu forsendum og aðrar stofnanir hins opinbera.

Efling undirritaði kjarasamning við ríkið 7. mars og við Reykjavíkurborg 10. mars, eftir að sóttvarnaryfirvöld gáfu út hvatningu til viðsemjenda um að ganga frá samningum. Þessir aðilar féllust á að gera sérstaka leiðréttingu á kjörum launalægstu hópa og sögulega vanmetinna kvennastétta.

Boðun verkfalls sem hefst á morgun var samþykkt með yfir 90% atkvæða þeirra sem afstöðu tóku í atkvæðagreiðslu, með metþátttöku. Atkvæðagreiðslan var endurtekin eftir að verkfallsaðgerðum var frestað í lok mars vegna kórónuveirufaraldursins. Starfsfólkið sem um ræðir starfar í framlínu faraldursins, meðal annars við þrif í grunnskólum og heimaþjónustu.

„Efling mun ekki skilja félagsmenn sína hjá Kópavogs- og Seltjarnarnesbæ eftir með verri kjarasamninga eingöngu af því að Sambandinu tókst að draga þessu kjaradeilu á langinn inn í kórónuveirufaraldurinn. Hver einn og einasti félagsmaður Eflingar hjá hinu opinbera mun fá sína kjaraleiðréttingu, kórónuveira eða ekki,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert