Ekkert nýtt smit

Ekk­ert nýtt kór­ónu­veiru­smit greind­ist hér­lend­is síðasta sól­ar­hring. Á sýkla- og veiru­fræðideild Land­spít­al­ans voru 95 sýni greind, en 367 hjá Íslenskri erfðagrein­ingu.

26 eru með virkt smit og hafa þau ekki verið færri síðan 3. mars, en 1.765 hafa náð sér af kór­ónu­veirunni hér­lend­is. Þrír liggja á sjúkra­húsi en eng­inn er á gjör­gæslu, að því er fram kem­ur á covid.is. Tíu eru lát­in af völd­um COVID-19.

Alls hafa 52.745 sýni verið tek­in og 1.801 greinst með veiruna hér á landi. 699 eru í sótt­kví en 19.462 hafa lokið sótt­kví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert