Öllum leigubílstjórum gert kleift að leggja inn atvinnuleyfi sitt

mbl.is/Kristinn Magnússon

Leigubifreiðastjórar sem hafa haft atvinnuleyfi skemur en tvö ár munu fá heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt samkvæmt nýju frumvarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi til breytinga á lögum um leigubifreiðar. 

Í gildandi lögum um leigubifreiðar frá 2001 hafa leigubifreiðastjórar heimild til að leggja inn atvinnuleyfi sitt en skilyrði er að þeir hafi haft atvinnuleyfi í minnst tvö ár samfleytt, að þvi´er fram kemur á vef samgönguráðuneytisins. 

„Markmið frumvarpsins er að draga úr neikvæðum efnahagslegum áhrifum vegna Covid-19 faraldursins á þann hóp leigubifreiðastjóra sem hafa starfað skemur en tvö ár. Með því að leggja inn leyfið geta leigubílstjórar sparað kostnað vegna atvinnuleyfisins, skráð sig atvinnulausa og sótt um atvinnuleysisbætur. Margir bílstjórar hafa þegar nýtt sér það úrræði vegna samdráttar á leigubifreiðamarkaði sökum áhrifa COVID-19 faraldursins,“ segir ennfremur. 

Lagt er til að nýja ákvæðið gildi til ársloka 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert