Telur ekki heimild fyrir að birta nöfn fyrirtækjanna

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. Stofnunin telur sig hvorki hafa heimild …
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. Stofnunin telur sig hvorki hafa heimild til að afhenda né birta lista yfir þau fyrirtæki sem gert hafa samkomulag við starfsmenn sína um minnkað starfshlutfall. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vinnumálastofnun telur sig hvorki hafa heimild til að afhenda né birta lista yfir þau fyrirtæki sem gert hafa samkomulag við starfsmenn sína um minnkað starfshlutfall. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. 

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði fyrr í dag að hann vilji að ferlið varðandi hlutabótaleið stjórnvalda verði að vera gegnsætt og að hann telji að stjórnvöld hafi nægar heimildir til að kalla eftir skýringum fyrirtækjanna. Þá telur hann að birta eigi lista yfir öll fyrirtæki sem hafa nýtt sér hlutabótaleiðina. 

Í tilkynningu Vinnumálastofnunar segir aftur á móti að ef birtur er listi fyrirtækjanna þá er auðveld leið að finna út nöfn þeirra sem fengið hafa greiddar atvinnuleysisbætur í minnkuðu starfshlutfalli.  „Það er óumdeilt, að rík skylda hvílir á stofnuninni að gæta þess að engin leið sé að nálgast upplýsingar um það, hvaða einstaklingar fái greiðslur frá henni, hvort sem um er að ræða atvinnuleysisbætur, fæðingarorlof, greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa o.s.frv.,“ segir í tilkynningunni. Um greiðslur til einstaklinga í minnkuðu starfshlutfalli gilda sömu lög og reglur.

Til að taka af allan vafa mun Vinnumálastofnun leita álits Persónuverndar hið fyrsta og óska eftir flýtimeðferð á erindi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert