Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi úr Hvalfirði, en DSP þörungaeitur greindist yfir viðmiðunarmörkum í honum.
Þetta segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Þar segir að fulltrúi Matvælastofnunar hafi safnað kræklingi við Fossá í Hvalfirði 4. maí síðastliðinn, en tilgangurinn var að kanna hvort almenningi væri óhætt að tína krækling í Hvalfirði.
Niðurstöður mælinga leiddu í ljós að DSP þörungaeitur var 260 µg/kg í kræklingum og er það yfir viðmiðunarmörkum, sem eru 160 µg/kg. Þar sem magn DSP er svona mikið má búast við að DSP eitur í kræklingi verði viðvarandi í sumar.
DSP þörungaeitur í kræklingi getur valdið kviðverkjum, niðurgangi, ógleði og uppköstum. Einkenni koma fram fljótlega eftir neyslu og líða hjá á nokkrum dögum.
Neytendur hafa ekki ástæðu til að varast krækling (bláskel) sem ræktaður er hérlendis og er á markaði í verslunum og veitingahúsum. Innlend framleiðsla á kræklingi er undir eftirliti Matvælastofnunar. Reglulega eru tekin sýni af skelkjöti og sjó til að fylgjast með magni eitraðra þörunga í sjó og hvort skelkjötið innihaldi þörungaeitur.