Báðir ökumenn ölvaðir í árekstri

Báðir ökumenn reyndust ölvaðir þegar bifhjólamaður ók aftan á bifreið …
Báðir ökumenn reyndust ölvaðir þegar bifhjólamaður ók aftan á bifreið við gatnamót í austurborginni í gærkvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ökumaður bifhjóls ók aftan á bíl við ljósastýrð gatnamót í Háaleitis- og Bústaðahverfi um klukkan sjö í gærkvöld. 

Lögregla var kölluð á vettvang en í ljós kom að ökumenn beggja ökutækja reyndust ölvaðir. Bifhjólamaðurinn slasaðist minniháttar. Báðir voru fluttir á lögreglustöð til sýna- og skýrslutöku en voru látnir lausir að því loknu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert