Ritað COVID, Covid, covid eða CoviD?

Mjög hefur dregið úr smitum kórónuveiru hér á landi.
Mjög hefur dregið úr smitum kórónuveiru hér á landi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

COVID-19, alþjóðlega heitið á þeim sjúkdómi sem kórónuveiran veldur, hefur stimplað sig inn í málvitund Íslendinga. En þótt flestir viti merkingu orðsins er deilt um ritháttinn.

Á ensku nefnist sjúkdómurinn coronavirus disease 2019. Misjafnt er hvernig fjölmiðlar heims hafa ritað skammstöfunina. Þannig hafa sumir notast við COVID, aðrir Covid og enn aðrir covid. Þá hefur jafnvel CoviD sést á blaði.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Jóhannes B. Sigtryggsson, rannsóknarlektor á málræktarsviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, segir stundum enga eina góða lausn í augsýn. Nauðsynlegt sé þó að velja einn rithátt til að tryggja stöðugleika.

„Þetta er dálítið vandræðaorð og reglur um skammstafanir eru ekki eins hjá okkur og í ensku. Það má kannski líkja þessu við SARS sem líka var stytt í HABL á sínum tíma. Það var ritað með hástöfum en kannski aðeins einfaldara því SARS stendur fyrir Severe Acute Respiratory Syndrome en í tilfelli COVID eru stafirnir C og D upphafsstafir orða. Að rita COVID með hástöfum er skásta leiðin,“ segir hann og bendir á að ekki séu ritaðir punktar í skammstöfunum sem ritaðar eru með hástöfum, s.s. HÍ, BHM, HABL og SARS.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert