Samið við flugvirkja hjá Icelandair

Þotur Icelandair á Keflavíkurflugvelli.
Þotur Icelandair á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Icelandair ehf. og Flugvirkjafélag Íslands hafa undirritað nýjan kjarasamning á milli félaganna fyrir tímabilið 1. janúar 2021 til 31. desember 2025. Samningurinn er í samræmi við þau markmið sem samningsaðilar lögðu upp með sem í senn styrkir samkeppnishæfni félagsins og stendur vörð um starfskjör og gott starfsumhverfi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Icelandair.

FVFÍ mun nú leggja samninginn fyrir félagsmenn sína til atkvæðagreiðslu.

Þar segir að kórónuveirufaraldurinn og afleiðingar hans hafi haft gríðarleg áhrif á starfsemi Icelandair. Mikil óvissa er um hvenær ferðatakmörkunum verði aflétt og spurn eftir flugi og ferðalögum taki við sér á ný.

Félagið hefur þurft að grípa til erfiðra en nauðsynlegra aðgerða til að bregðast við óvissunni. Á sama tíma er unnið að því að styrkja samkeppnishæfni félagsins til lengri tíma,“ kemur fram í tilkynningunni.

„Það er ánægjulegt og mikilvægt að hafa undirritað langtímasamning við eitt af lykilstéttarfélögum okkar. Viðræðurnar voru lausnamiðaðar allt frá upphafi enda hafa aðstæður í umhverfi flugfélaga aldrei verið meira krefjandi en nú. Við stóðum frammi fyrir ýmsum áskorunum sem við unnum að í sameiningu að leiða til lykta. Þetta er mikilvægt skref í að styrkja stöðu félagsins og samkeppnishæfni á alþjóðamarkaði svo við verðum í stakk búin til að sækja fram af krafti þegar óvissunni lýkur og til framtíðar,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.

Ég tel að samninganefnd Flugvirkjafélags Íslands hafi mætt þeim þörfum og markmiðum sem Icelandair telur að þurfi að uppfylla í því ástandi sem ríkir. Undirritun á samningi er lausn fyrir báða aðila í þeirri stöðu. Við lögðum áherslu á að kjarasamningsbundin gildi flugvirkja yrðu varðveitt þannig að sátt væri um stöðu mála,“ segir Guðmundur Úlfar Jónsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert