„Mér finnst þau til háborinnar skammar,“ segir Sigrún Jónsdóttir, formaður landssamtaka íslenskra stúdenta þegar ummæli Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, frá því í Silfrinu í morgun eru borin undir hana.
Ásmundur kvaðst hafa áhyggjur af því að of mikil áhersla sé lögð á að koma hópum á atvinnuleysisbætur frekar en að koma þeim í vinnu.
„Ég er ekki hvatamaður þess að hvorki námsmenn né aðrir á atvinnuleysisbótum fái fjármagn úr ríkissjóði fyrir að gera ekki neitt. Ég hef í rauninni áhyggjur af því að allar kröfur sem koma fram miða rosalega mikið við það að við eigum að slökkva á öllu og loka öllu, að allir vilji fá fjármagn fyrir að gera ekki neitt,“ sagði Ásmundur meðal annars.
Sigrún sagði að undanfarnar vikur hefði mikið kapp verið lagt á að vekja athygli á stöðu stúdenta, á þessum erfiðu tímum. Staðan hafi verið kortlögð en niðurstöður kannana meðal námsfólks benda til þess að töluvert atvinnuleysi verði meðal þeirra í sumar.
„Við höfum lagt áherslu á sköpun sumarstarfa samhliða réttinum til atvinnuleysisbóta. Það er einfaldlega vegna niðurstaðna þessara kannana,“ segir Sigrún.
Atvinnuleysisbæturnar eigi þá að vera nokkurs konar „björgunarhringur“ fyrir þá námsmenn sem ekkert sumarstarf fá.
„Rúmlega sjö þúsund stúdentar voru ekki komnir með sumarstarf um miðjan apríl,“ segir Sigrún og bætir við að síðan þá hafi fjölda fólks hafi verið sagt upp í hópuppsögnum í lok apríl.
„Staðan verður því stöðugt svartari,“ segir Sigrún. Henni þykja ummæli ráðherra lýsa algjöru skilningsleysi á stöðu stúdenta.
„Ég held að ef maður myndi bjóða námsmanni val á milli þess að vinna eða gera ekki neitt myndi ég veðja öllu mínu á að námsmaðurinn myndi vilja vinna,“ segir Sigrún.
„Nú er ekkert val; bara skortur á störfum.“