Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. Gestur fundarins verður Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.