Tilmæli vegna sótmengunar

Lagarfoss á siglingu til Sundarhafnar
Lagarfoss á siglingu til Sundarhafnar mbl.is/Árni Sæberg

Rannsóknarnefnd samgönguslysa, sjóslysasvið, hefur beint því til yfirvalda hvort ekki sé ástæða til að banna opinn vothreinsibúnað við strendur landsins eins og sum lönd og/eða hafnir hafi gert.

Fram kemur í skýrslu um atvik á síðasta ári að þessi búnaður hafi víða verið bannaður af umhverfissjónarmiðum og þurfi skip því að skipta yfir á vistvænna eldsneyti áður en siglt er til þessara staða.

Þetta kemur fram í lokaskýrslu nefndarinnar í kjölfar þess að 15. ágúst í fyrra kom sótmengun í höfnina í Vestmannaeyjum frá Lagarfossi úr svokölluðum vothreinsibúnaði. Hann hafði verið settur í skipið mánuði áður til hreinsunar á afgasi frá aðalvél vegna svartolíubrennslu.

Rakið er í skýrslunni að reglur hafi verið hertar um brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti. Frá 2015 er leyfilegt brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti innan landhelgi Íslands 0,1%, en hámarkið var áður 3,5%.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert