Einhugur um að hafna útspili Icelandair

Flugvélar Icelandair.
Flugvélar Icelandair. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Algjör einhugur er meðal félagsmanna Flugfreyjufélags Íslands um að hafna útspili Icelandair frá 10. maí sem felur í sér tugprósenta launalækkanir og skerðingu á réttindum til frambúðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá FFÍ.

„Stjórn FFÍ kannaði afstöðu félagsmanna á fundi nú í hádeginu og eru félagsmenn með öllu mótfallnir því að að umturna gildandi kjarasamningi á einu bretti og fórna kjörum og réttindum sem tekið hefur áratugi að byggja upp,“ segir í tilkynningunni.

Félagið ítrekar samningsvilja sinn um að koma til móts við Icelandair á meðan núverandi ástand varir og er áfram tilbúið til samtals um sanngjarnar breytingar á gildandi kjarasamningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert