Telja fyrirtækin komast í gegnum ástandið

Horft yfir Akureyri.
Horft yfir Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi

Ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi telja að þau muni komast í gegnum það ástand sem Covid-19-veirufaraldurinn hefur skapað og ætla að vera með opið hjá sér í sumar. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Markaðsstofa Norðurlands gerði í byrjun maí.

Meirihluti þeirra er að nýta úrræði ríkisstjórnarinnar, þar af eru flest þeirra að nýta hlutabótaleiðina að því er fram kemur í tilkynningu.

Alls sögðu tæplega 39% að mjög líklega myndi fyrirtækið þeirra lifa Covid-19 ástandið af og tæp 38% segja það frekar líklegt. Þá var spurt um hvort fyrirtæki yrðu með opið hjá sér í sumar en 91% þeirra sem svöruðu þessari spurningu svöruðu henni játandi. Þar af voru 60% sem verða með opið hjá sér allt árið og opnunin því ekki aðeins bundin við háönnina á komandi mánuðum.

Þegar spurt var um hvort fólk væri sammála þeirri fullyrðingu að íslenskir ferðamenn væru mikilvægir fyrir þeirra fyrirtæki, kom í ljós að meirihlutinn telur svo vera. Alls sögðu tæp 36% að þau væru mjög sammála þessari fullyrðingu og tæp 23% að þau væru frekar sammála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert