Níu sveitarfélög fá þyngsta höggið

Jarðböðin við Mývatn. Skútustaðahreppur er eitt sveitarfélaganna níu.
Jarðböðin við Mývatn. Skútustaðahreppur er eitt sveitarfélaganna níu.

Fjöldi sveitarfélaga verður fyrir miklum búsifjum vegna skerts ferðamannaflæðis sökum kórónuveirufaraldursins. Níu sveitarfélög í þremur landshlutum verða fyrir þyngsta högginu, að því er fram kemur í nýrri samantekt Byggðastofnunar.

Eru þau eftirfarandi á Suðurlandi: Bláskógabyggð, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur, Skaftárhreppur og Hornafjörður. Á Suðurnesjum: Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Vogar. Loks tilheyrir þessum hópi Skútustaðahreppur á Norðurlandi eystra.

„Greiningin staðfestir að hrun ferðaþjónustunnar hefur gríðarleg áhrif á sveitarfélög landsins,“ er haft eftir Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á vef stjórnarráðsins.

„Hún gefur einnig góðar vísbendingar um hvaða sveitarfélög og svæði í byggðalegu tilliti kunni að standa verst að vígi. Það er afar mikilvægt að hafa skýra mynd af stöðunni til þess að stjórnvöld og sveitarfélög geti brugðist vel við og hafið uppbyggingu að nýju.“

Þrjár sviðsmyndir

Í samantektinni er gerð greining á því hvar höggið af ferðaþjónustunni verður harðast, sérstaklega með tilliti til atvinnuleysis og lækkunar atvinnutekna. Í útreikningunum voru settar upp þrjár sviðsmyndir. Bjartsýn sviðsmynd sem gerir ráð fyrir 30% minna atvinnuleysi, miðmynd sem gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði það sama næstu tólf mánuði og það er áætlað í maí, og loks svartsýn mynd sem gerir ráð fyrir að atvinnuleysi aukist og verði 30% meira næstu tólf mánuði.

Einnig var áætlaður samdráttur á atvinnutekjum eftir helstu greinum sem tengjast ferðaþjónustu, miðað við atvinnutekjur á árinu 2019. Þar er m.a. stuðst við erlenda kortaveltu og áætlun um samdrátt á henni.

Út frá þessu var reiknuð möguleg lækkun á útsvarsstofni einstakra sveitarfélaga, en samkvæmt þeim útreikningum dregur Byggðastofnun fram þessi níu sveitarfélög sem geta orðið fyrir hvað þyngstu höggi vegna hruns ferðaþjónustunnar.

Ráðuneytið hefur óskað eftir því við Byggðastofnun að sambærileg greining verði unnin fyrir höfuðborgarsvæðið og er sú vinna hafin. Þá er hafin vinna nýskipaðs starfshóps við að safna saman samtímaupplýsingum um fjárhagsstöðu einstakra sveitarfélaga á árinu 2020. Upplýsingarnar og gagnagrunnur gefur tækifæri til að áætla um horfur ársins að teknu tilliti til ýmissa þátta, m.a. þróunar atvinnuleysis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert