Stefán Yngvason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalund frá 1. júní. Stefán hefur verið starfandi framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi og gegnt starfi formanns starfsstjórnar Reykjalundar frá því í nóvember eftir að deilur komu upp innan stofnunarinnar.
Stefán er sérfræðingur í endurhæfingarlækningum og hefur starfað við endurhæfingarlækningar frá árinu 1988. Stefán á að baka langan feril sem endurhæfingarlæknir og stjórnandi innan endurhæfingar bæði í Svíþjóð og á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu.
Hann hefur komið að þróun starfsemi á flestum sviðum í faginu á undanförnum áratugum. Stefán var við stjórnvölinn við uppbyggingu endurhæfingardeildar á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit. Hann hefur verið yfirlæknir á Grensásdeild Landspítala á miklum umbrota- og breytingatímum í starfsemi spítalans. Ásamt því var hann sviðstjóri endurhæfingarsviðs spítalans þegar sameining Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur varð að veruleika.