Aðstæður til leitar á og við Vopnafjörð eru góðar, en leit að skipverja sem er talinn hafa fallið fyrir borð af fiskiskipi á leið þess til hafnar í Vopnafirði í gær hófst að nýju í morgun.
Jón Sigurðsson, formaður björgunarsveitarinnar Vopna, segir að nú sé verið að keyra út hópa til leita í fjörum og á bátum. „Aðstæður eru hliðhollar okkur, hægur vindur og bjart. Lítill sjór. Það er allt saman mjög jákvætt,“ segir Jón.
Björgunarsveitir allt vestur frá Húsavík og suður frá Djúpavogi eru komnar til Vopnafjarðar og veita liðsinni í leitinni.
„Nú er mikill kraftur settur í leit, um 170 manns taka núna þátt í henni. Við erum með fólk frá Húsavík, Aðaldal og alveg austur að Djúpavogi,“ segir Jón.
Þyrla Landhelgisgæslunnar tók þátt í leitinni í gær, en er nú farin suður aftur. Landhelgisgæslan mun áfram aðstoða við leit úr lofti með eftirlits- og björgunarflugvél.
Jón segir að leit hafi enn engan árangur borið.
„Það er ekkert komið í ljós enn þá. Við göngum enn út frá því að hann hafi fallið útbyrðis.“