Rannsókn tæknideildar lögreglu á vettvangi brunans við Hafnarstræti 37 á Akureyri stóð fram undir kvöld en henni er ekki lokið. Eldur kom upp í húsinu á áttunda tímanum í gærkvöldi og er það talið ónýtt.
Lögreglumenn frá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fóru norður í dag til að aðstoða lögregluna á Norðurlandi eystra.
Karlmaður fannst meðvitundarlaus í húsinu og var fluttur með sjúkraflugi Mýflugs til Reykjavíkur og á Landspítalann, þar sem hann liggur þungt haldinn.