Í dag var alþingismönnum sent opið bréf með áskorun um að „skýr og afdráttarlaus lög verði sett um eignarhald á landi og bann verði sett við eignasöfnun auðkýfinga og gegn því að eignarhald sé í höndum annarra en þeirra sem eiga lögheimili hér á landi“.
Undirskriftalistar með þessum kröfum voru afhentir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðinu í dag. 8.091 skrifaði undir kröfurnar á netinu í gegnum hópinn „Seljum ekki Ísland“.
Jóna Imsland, stofnandi síðunnar og ábyrgðarmaður undirskriftarsöfnunarinnar, segir Katrínu hafa tekið vel í kröfurnar.