Alsælir á leiðinni í ræktina

Nokkrir biðu fyrir utan World Class í Laugum þegar stöðin …
Nokkrir biðu fyrir utan World Class í Laugum þegar stöðin var opnuð skömmu eftir miðnætti í nótt. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Viðskiptavinir World Class fögnuðu því í nótt að líkamsræktarstöðvar voru opnaðar að nýju á miðnætti og nýttu ýmsir tækifærið til að skreppa í ræktina strax í nótt. Allt gekk vel fyrir sig að sögn starfsmanna í Laugum og World Class í Kringlunni.

Engar biðraðir voru fyrir utan stöðvarnar í nótt þannig að enginn þurfti að bíða úti í rigningunni en um 5:30 í morgun voru margir að mæta í Laugar enda mæta morgunhanarnir yfirleitt ekki mikið seinna en sex í ræktina. 

Glaðir viðskiptavinir World Class fara inn í stöðina í nótt.
Glaðir viðskiptavinir World Class fara inn í stöðina í nótt. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Að sögn starfsfólks í Laugum og Kringlunni eru allir alsælir með að komast loksins í ræktina en líkamsræktarstöðvar hafa verið lokaðar síðan í mars. 

Frá og með deginum í dag verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í stað 50, heimilt verður að opna líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og öllum veitingastöðum, þar með töldum krám og skemmtistöðum, og einnig spilasölum, verður heimilt að hafa opið til kl. 23.00. 

World Class í Laugum.
World Class í Laugum. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Með nýrri auglýsingu frá heilbrigðisráðuneytinu verður framkvæmd tveggja metra reglunnar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru viðkvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu. Þannig verði til dæmis á veitingastöðum, í leikhúsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.

Á líkamsræktarstöðvum verður, líkt og á á sund- og baðstöðum, takmörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Eins og fram kemur í auglýsingunni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótthreinsun og þrif almenningsrýma og hingað til.

Frá upphafi COVID-19-faraldursins hér á landi hafa greinst smit hjá rúmlega 1.800 einstaklingum. Undanfarið hefur nýsmitum fækkað verulega og hafa aðeins sex einstaklingar greinst það sem af er maímánuði. Alls eru þrjú virk smit og eru viðkomandi allir í einangrun, en enginn á sjúkrahúsi. 

Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að þær tilslakanir sem gerðar voru á samkomutakmörkunum 4. maí síðastliðinn virðist ekki hafa leitt til fjölgunar sjúkdómstilfella.

Ný auglýsing um takmörkun á samkomubanni gildir til 21. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert