Álagning skatta birt á morgun

Skatturinn vill sitt.
Skatturinn vill sitt. mbl.is/Golli

Álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2020 vegna tekna ársins 2019 er að ljúka hjá Skattinum. Álagningin mun verða aðgengileg á þjónustusíðu hvers og eins einstaklings á vefnum www.rsk.is á morgun, fimmtudaginn 28. maí.

Álagningin sýnir líkt og áður stöðu inneigna og/eða skulda niður á hvern gjalddaga. Þá verður hægt að skoða einstaka liði álagningarinnar til að sjá útreikninga og nánari upplýsingar. Þannig er m.a. mögulegt að skoða útreikninga barnabóta, vaxtabóta, tekjuskatts og útsvars.

Auk þess er að finna upplýsingar um hve hátt hlutfall skatta, sem lagðir eru á tekjur einstaklinga, er af tekjuskattsstofni og hvernig skattgreiðslurnar skiptast á milli ríkissjóðs og sveitarfélags. Þá bætist við liður frá í fyrra hjá þeim sem hafa barn/börn á framfæri en það er sérstakur barnabótaauki.

Elín Alma Arthursdóttir, sviðsstjóri hjá Skattinum, segir að í dag muni birtast á vefnum ítarlegri leiðbeiningar en áður um hvernig fólk geti lesið út úr niðurstöðunni. Þær verða á íslensku, ensku og pólsku.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert