Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sé enn þeirrar skoðunar að skimun farþega fyrir kórónuveirunni á Keflavíkurflugvelli frá og með 15. júní sé rétta leiðin þegar komi að opnun landamæranna.
Þetta sagði Svandís í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni og er greint frá á Vísi.
Eins og sagt var frá í gærkvöldi skilaði Þórólfur drögum að minnisblaði um útfærslu opnunar landamæra og skimunar á Keflavíkurflugvelli til ráðherra.
Svandís sagði jafnframt í þættinum, að sóttvarnalæknir leggi það til í drögunum að minnisblaðinu að stjórnvöld haldi sig við það að opna landamærin 15. júní. Hver einasti ferðamaður verði frá og með þeim deg skimaður og árangurinn metinn jafnóðum.