Fjöldi fólks er saman kominn á Austurvelli til að taka þátt í samstöðufundi með þeim sem mótmælt hafa ofbeldi lögreglu gegn svörtu fólki í Bandaríkjunum.
Fundurinn hófst með upplestri á nöfnum svartra Bandaríkjamanna sem hafa látist eftir samskipti við lögreglu. Þá tók við 8 mínútna og 46 sekúnda þögn, en mótmælin í Bandaríkjunum hófust eftir að lögregluþjónn í Minneapolis kraup á hálsi George Floyd í 8 mínútur og 46 sekúndur með þeim afleiðingum að Floyd kafnaði.