Tvö samhliða frumvörp til breytingar á lögum um þingsköp og opinber fjármál verða til umræðu á þingfundi á næstu dögum, en frumvörpin varða meðal annars frestun á samkomudegi reglulegs Alþingis til 1. október.
Tilgangur frumvarpanna, sem lögð voru fram af forsætis- og fjármálaráðherra í síðustu viku, er að veita svigrúm til þess að undirbúa breytingar á fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar og ganga frá fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2021 og fjármálaáætlun fyrir árin 2021-2025.
Lagt er til að vikið verði frá tímafresti laga um opinber fjármál vegna endurskoðunar á fjármálastefnu ríkistjórnarinnar og framlagningar fjármálaáætlunar á Alþingi.
Felur það í sér að haustþing hefjist ekki annan þriðjudaginn í september, eins og þingskapalög kveða á um, heldur verði samkomudegi frestað til 1. október. Fjármálastefna ríkisstjórnarinnar verði þá rædd á svokölluðum þingstubbi í lok júnímánaðar, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.