Ísland leggur fram hálfan milljarð vegna veirunnar

Katrín Jakobsdóttir ávarpaði ráðstefnuna.
Katrín Jakobsdóttir ávarpaði ráðstefnuna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti í dag um framlag Íslands til sérstaks aðgerðabandalags fjölmargra ríkja, fyrirtækja og stofnana, á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi.

Bandalagið, sem á vef stjórnarráðsins er sagt miða að því að hraða þróun, framleiðslu og dreifingu á bóluefni við COVID-19, var stofnað fyrir rúmum mánuði og mun markmið þess jafnframt vera að stuðla að sýnatökum og meðferðarúrræðum fyrir alla, óháð búsetu og efnahag.

250 til Gavi og 250 til CEPI

Framlag Íslands skiptist þannig að 250 milljónir króna fara til bólusetningarbandalagsins Gavi og sama upphæð til CEPI (e; Coalition for Epidemic Preparedness Innovation) sem er samstarfsvettvangur fyrirtækja og opinberra aðila um viðbúnað gegn farsóttum.

Fjölmargar alþjóðastofnanir og sjóðir á sviði heilbrigðismála, auk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar standa að aðgerðabandalaginu og hefur fjöldi ríkja tilkynnt um framlög til mismunandi stofnana undir hatti þess. Þannig hafa Norðmenn lofað milljarði bandaríkjadala og Bandaríkin, Bretland, Kanada og Þýskaland lofað hundruðum milljóna bandaríkjadala, að því er fram kemur í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Jafn aðgangur einn mikilvægasti þátturinn

Forsætisráðherra lagði í ræðu sinni áherslu á jafnan aðgang allra að heilsugæslu og öruggum bóluefnum óháð kyni, efnahag og búsetu.

„Jafn aðgangur að heilbrigðisþjónustu er einn mikilvægasti þáttur heilbrigðismála og tryggir grunnmannréttindi; réttinn til lífs. Bólusetning færir öllum kynslóðum tækifæri til heilbrigðrar og innihaldsríkrar ævi,“  sagði Katrín en hún sat jafnframt fyrir svörum á fjölmiðlafundi í lok ráðstefnunnar.

Auk forsætisráðherra Íslands ávarpaði fjöldi þjóðarleiðtoga fjarráðstefnuna sem boðað var til af Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. Bill Gates, stofnandi Microsoft, var jafnframt einn ræðumanna en stofnun Bill og Melindu Gates hefur heitið 250 milljónum bandaríkjadala til baráttunnar gegn COVID-19. Markmið Gavi-ráðstefnunnar í dag var að safna samtals 7,4 milljörðum bandaríkjadala og náðist það og gott betur því alls söfnuðust 8,8 milljarðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert