Helgi Bjarnason
Efling stéttarfélag leggur áherslu á að gerður verði sjálfstæður kjarasamingur við félagsfólk sem vinnur hjá skólum innan Samtaka sjálfstæðra skóla.
Áður hefur gerið gengið frá samningum með því að vísa til efnis kjarasamninga Eflingar við viðkomandi sveitarfélög.
Fyrsti fundur samninganefndar Eflingar og Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) var í fyrradag, eftir að deilunni var vísað til ríkissáttasemjara. Nýr fundur verður boðaður innan tveggja vikna. Sara Dögg Svanhildardóttir, formaður SSSK, segir að samtökin séu að fara yfir málin og jafnframt að afla fulls umboðs frá aðildarfyrirtækjum. „Við furðum okkur á töfum sem hafa orðið á því að ganga frá þessum málum,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.