„Það er fyrst og fremst ánægjulegt hversu mikil þátttaka var í atkvæðagreiðslunni. Einnig erum við að fá mjög skýr skilaboð með því að það skuli rúm 85% vera tilbúin í aðgerðir,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í samtali við mbl.is.
Félagsmenn Fíh sem starfa hjá ríkinu hafa samþykkt verkfallsboðun og nái aðilar ekki saman mun ótímabundið verkfall hefjast klukkan 8 mánudaginn 22. júní 2020. Verkfallsboðunin var samþykkt með miklum meirihluta, en 85,5% sögðu já. Nei sögðu 13,3% og 1,2% skiluðu auðu. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,2% en verkfallið nær til um 2.600 félagsmanna.
„Ég er búin að heyra í ríkissáttasemjara og líka aðeins í formanni samninganefndar ríkisins og það hafa allir áhuga á því að halda samtalinu áfram,“ segir Guðbjörg. Ekki hefur verið boðað til samningafundar en hún segist eiga von á fundarboði. „Það er mikið undir fyrir ríkið að heilbrigðiskerfið geti starfað áfram.“