Mótefnamælingar Íslenskrar erfðagreiningar benda til þess að þrisvar sinnum fleiri Íslendingar hafi fengið kórónuveiruna en greindust með hana.
Þetta kom fram í máli Kára Stefánssonar, forstóra Íslenskrar erfðagreiningar, í þættum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Samkvæmt því hafa tæplega 5.500 manns smitast af kórónuveirunni hér á landi en staðfest smit frá upphafi faraldurs, sé vitnað til vefsíðunnar covid.is, eru 1.806.
Slembiúrtaki þjóðarinnar var boðið í sýnatöku en Kári sagði að um 30 þúsund hefðu komið í mótefnamælingar. Þeim mælingum væri lokið í bili og niðurstöður klárar hjá stórum hópi.
Áður hefur komið fram að samkvæmt mælingum Íslenskrar erfðagreiningar hafa 0,9% þjóðarinnar, fyrir utan þau sem voru með staðfest smit og í fóru í sóttkví, myndað mótefni gegn kórónuveirunni.