Fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa ekki haft samband við forstjóra flugfélagsins Ernis frá því að félaginu var tilkynnt á fundi 30. apríl að færa yrði flugskýli þess þar sem borgin hygðist leggja veg í gegnum svæðið. Þetta segir Hörður Guðmundsson, forstjóri félagsins.
Í samtali við mbl.is í gær sagði Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur og borgarfulltrúi Pírata, að engin áform væru uppi um að rífa flugskýlið. „Í fyrstu tillögu að þessum vegi átti hann að liggja þar sem skýlið er, það komu fram mótmæli gegn þeim áformum á fundi með Erni og þá var strax farið í að skoða aðrar mögulegar leiðir fyrir veginn.“
Vísar Sigurborg þarna væntanlega til fundar sem haldinn var 30. apríl með fulltrúum borgarinnar og forstjóra Ernis. Í fundargerðinni, sem mbl.is hefur undir höndum, segir:
„Fyrir liggur að fjarlægja þarf flugvélaverkstæði Ernis að óbreyttu, þ.e. flugskýli #6, vegna fyrirhugaðrar veglagningar í gegnum flugskýlið.“
Þrátt fyrir að Sigurborg segi að tekin hafi verið ákvörðun um að láta undan að fundi loknum, hefur Hörður ekkert heyrt frá borginni.
„Það hafði enginn samband fyrr en það fór að kvisast út hvað væri í gangi,“ segir Hörður í samtali við mbl.is en bætir við að ánægjulegt sé að borgin hafi gefið eftir enda hafi framkoman verið „yfirgengilegt ofbeldi“.
Vegurinn, sem um ræðir, er hugsaður til bráðabirgða vegna vinnu við uppbyggingu byggðar í Skerjafirði, en í framhaldinu yrði vegur til framtíðar lagður um svæðið. Hörður segist ekki vita hvaða leið verði farin við útfærslu vegarins en að hann hafi bent borgaryfirvöldum á gamla teikningu þar sem vegurinn er lagður vestan og neðan við skýlið.