Umferðartafir í fyrramálið

Mynd af framkvæmdasvæðinu.
Mynd af framkvæmdasvæðinu.

Stefnt er að því að fræsa 1,6 km langan kafla á Reykjanesbraut í Kópavogi, milli Nýbýlavegar og Arnarnesvegar á morgun. Áætlað er framkvæmdirnar standi frá kl. 09.00 til kl. 15.00 og verður þrengt um eina akrein og viðeigandi merkingar settar upp, segir í fréttatilkynningu.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum að því er segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert