Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mætti á framkvæmdasvæði nýs Landspítala í dag þegar táknræn lokasprenging í grunni nýs meðferðarkjarna við Hringbraut var framkvæmd.
Nýr meðferðarkjarni er stærsta byggingin í heildaruppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut.
Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin á skipulagsreit Hringbrautarverkefnisins og í henni verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Að því er segir í tilkynningu hafa sambærilegar kröfur verið gerðar um aðbúnað í meðferðarkjarnanum og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar.
Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að um stór tímamót sé að ræða.„Framkvæmdir hér á svæðinu hafa gengið vel og færa okkur nær þvi markmiði að hér verði tekið í notkun nýtt þjóðarsjúkrahús árið 2026. Nýtt sjúkrahús mun breyta miklu til framtíðar í allri heilbrigðisþjónustu, auka þjónustu við sjúklinga og stórbæta aðstöðu heilbrigðisstarfsfólks.“
Haft er eftir Gunnari Svavarssyni framkvæmdastjóra NLSH ohf. í tilkynningu að jarðvegsframkvæmdir við grunn hússins hafi gengið samkvæmt áætlun. ÍAV hefur verið aðalverktaki verksins. „Verkefnið hefur ekki haft neina samgönguröskun í för með sér á svæðinu og um leið endurspeglar landfyllingarverkefnið gildi umhverfisþátta og þess metnaðar sem lagt er upp með. Þessi táknræna lokasprenging í grunninum segir okkur að nú sé næsta stóra verkefnið að steypa upp húsið og áætlanir NLSH eru að uppsteypan geti hafist von bráðar í samræmi við heimildir. Fimm verktakar munu fljótlega skila inn tilboðum í lokuðu útboði,“ segir Gunnar.