Margrét Valdimarsdóttir, lektor í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri og doktor í afbrotafræði, greinir frá því að Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafi boðað sig á fund með öllum lögreglustjórum landsins, en markmiðið er að kynna fyrir þeim rannsóknir á fordómum í lögreglustarfinu og ræða mögulegar rannsóknir á íslensku lögreglunni.
Frá þessu greinir Margrét í færslu á Twitter. „Ég vona að allir átti sig á því hvað þetta er jákvætt,“ skrifar Margrét.
Hún ræddi nýverið við mbl.is. um ástandið í Bandaríkjunum þar sem mikil mótmæli brutust út í kjölfar þess að hvítur lögreglumaður varð svörtum manni að bana.
Þar sagði Margrét m.a. að flestar rannsóknir bentu til þess að svörtum Bandaríkjamönnum væri mismunað í öllu kerfinu, ekki bara í aðgerðum lögreglu, sem væri ekki hægt að skýra að fullu með hærri tíðni afbrota á meðal svartra. Hún tók ennfremur fram að mismunun í bandarísku réttarkerfi hafi þó ekki verið að aukast, heldur sé fólk meðvitaðra um ástandið.
„Í síðustu viku birtust viðtöl við mig í fjölmiðlum um lögregluna í Bandaríkjunum, í einhverjum af þessum viðtölum talaði ég um að það skorti rannsóknir á störfum ísl lögreglunnar. Í kjölfarið bauð nýi ríkislögreglustjórinn mér á fund með henni og öllum lögreglustjórum landsins,“ skrifar Margrét á Twitter.