Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra boðar til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu kl. 14.00 í dag.
Ásamt dómsmálaráðherra verða Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, til svara. Meginefni fundarins eru breytingar á reglum um komu ferðamanna til Íslands 15. júní.