Hafnaði í sjónum á Eyrarbakka

Verið er að draga bifreiðina upp úr sjónum á Eyrarbakka.
Verið er að draga bifreiðina upp úr sjónum á Eyrarbakka. Ljósmynd/Aðsend

Unnið er að því að koma bifreið á land á Eyrarbakka sem hafnaði í sjónum þar í nótt. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir að bifreiðin hafi hafnað í sjónum í Eyrarbakkahöfn seint í gærkvöldi en ökumaðurinn komið sér sjálfur í landi. Hann slapp ómeiddur frá atvikinu.

Málið er í rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert